Handbolti

Aron sneri aftur á völlinn í sigri Kiel

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Aron Pálmarsson spilaði með Kiel í kvöld.
Aron Pálmarsson spilaði með Kiel í kvöld. Vísir/Getty
Aron Pálmarsson sneri aftur á völlinn í fyrsta sinn í kvöld eftir höfuðhöggið sem hann fékk með íslenska landsliðinu á HM í Katar.

Hann skoraði tvö mörk er Kiel hafði betur gegn Meshkov Brest í Meistaradeild Evrópu, 33-22. Þetta var síðasti leikur Kiel í riðlakeppninni en lærisveinar Alfreðs Gíslasonar unnu sinn riðil örugglega - með níu sigra í tíu leikjum.

Með sigrinum varð einnig ljóst að Meshkov Brest á ekki lengur möguleika á sæti í 16-liða úrslitum keppninnar og munu PSG, Croatia Zagreb og Naturhouse La Rioja fara áfram úr riðlinum með Kiel.

Marko Vujin skoraði sex mörk fyrir Kiel í kvöld og var markahæstur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×