Handbolti

Guðjón Valur skoraði þrjú mörk í toppslagnum

Úr leik Barcelona og Kolding.
Úr leik Barcelona og Kolding. vísir/afp
Barcelona fór frekar illa með lærisveina Arons Kristjánssonar í Kolding í kvöld.

Þetta var toppslagur í B-riðli og úrslitaleikur um toppsætið í riðlinum. Kolding átti aldrei möguleika gegn ofurliði Barcelona sem vann 33-27.

Munurinn var tíu mörk í síðari hálfleik en Börsungar slökuðu talsvert á klónni seinni hluta hálfleiksins.

Guðjón Valur Sigurðsson átti fínan leik fyrir Barcelona og skoraði þrjú mörk. Hann var settur í hvíld á bekkinn er seinni hálfleikur var hálfnaður. Þá var löngu búið að afgreiða leikinn.

Barcelona er með þrem stigum meira en Kolding og Flensburg og þar með búið að vinna riðilinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×