Körfubolti

Sigurður og félagar komu á óvart

Sigurður Gunnar Þorsteinsson.
Sigurður Gunnar Þorsteinsson. vísir/daníel
Íslendingaliðið Sundsvall Dragons tapaði óvænt á heimavelli sínum í kvöld.

Þá komu Sigurður Gunnar Þorsteinsson og félagar hans í Solna Vikings og nældu í sterkan útisigur, 80-89.

Sigurður Gunnar skoraði 7 stig í leiknum, tók 5 fráköst og gaf 2 stoðsendingar.

Hlynur Bæringsson lék best Íslendinganna hjá Sundsvall. Hann var með tröllatvennu. Skoraði 14 stig og tók 16 fráköst. Hann gaf þess utan 3 stoðsendingar.

Jakob Örn Sigurðarson skoraði 10 stig fyrir Sundsvall og Ægir Þór Steinarssonar 2.

Sundsvall í fjórða sæti en Solna því sjöunda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×