Handbolti

Sex íslensk mörk í tapi Löwen

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Alexander skoraði þrjú mörk fyrir Löwen í kvöld.
Alexander skoraði þrjú mörk fyrir Löwen í kvöld. vísir/getty
Aklexander Petersson og Stefán Rafn Sigurmannsson skoruðu þrjú mörk hvor þegar Rhein-Neckar Löwen tapaði með sjö marka mun, 28-35, fyrir Vardar Skopje í lokaumferð riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í handbolta í kvöld.

Varnarleikur Ljónanna var í molum í kvöld en liðið fékk á sig 20 mörk í fyrri hálfleik.

Svissneski leikstjórnandinn Andy Schmid var markahæstur í liði Löwen með sex mörk en Króatinn Igor Karacic skoraði átta mörk fyrir Vardar.

Með sigrinum tryggðu Makedónarnir sér 2. sætið í C-riðli á kostnað Löwen sem endaði í því þriðja.

Veszprém er þegar búið að vinna riðilinn en Ungverjarnir mæta Montpellier, sem endar í 4. sæti riðilsins, á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×