Rúnar skoraði níu í tapi gegn Ljónunum Anton Ingi Leifsson skrifar 8. mars 2015 17:56 Rúnar Kára í landsleik. Vísir/Vilhelm
Fimmtán íslensk mörk litu dagsins ljós í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag. Rúnar Kárason skoraði flest mörkin eða níu talsins. Leikur Rhein-Neckar Löven og Hannover var jafn og spennandi framan af og var staðan meðal annars 10-10. Þá tóku ljónin við sér og voru fimm mörkum yfir í hálfleik, 18-13. Þeir héldu svo uppteknum hætti í síðari hálfleik og unnu að lokum átta marka sigur, 31-23. Með sigrinum fór Löven upp að hlið Kiel á toppnum, en Hannover er í því ellefta. Alexander Petersson skoraði fimm mörk fyrir Löven, en hann var næst markahæstur. Bjarte Myrhol var markahæstur með sex mörk. Rúnar Kárason lék á alls oddi fyrir Hannover, en hann skoraði níu mörk. Sigurbergur Sveinsson skoraði eitt mark þegar lið hans Erlangen beið í lægri hlut gegn TBV Lemgo á útivelli. Lokatölur urðu 29-23 eftir að staðan hafi verið 14-9 Lemgo í vil í hálfleik. Benjamin Herth og Tim Hornke voru markahæstir hjá Lemgo með sex mörk hvor, en Ole Rahmel skoraði átta fyrir Erlangen. Brösulega gengur hjá Erlangen sem er í næst neðsta sæti deildarinnar. Lemgo er í því sextánda af nítján liðum, en fjögur lið falla um deild. Botnlið BBM Bietigheim náði ekki að stela stigi af ríkjandi Evrópumeisturum í Flensburg. Þeir höfðu þó forystu í hálfleik, 13-12. Flensburg setti í fluggír í síðari hálfleik og breyttu stöðunni meðal annars úr 22-20 í 28-20, en lokatölur 31-25 sigur FLensburgar. Johan Jakobsson skoraði mest fyrir Flensburg eða átta mörk samtals, en Robin Haller gerði einnig átta fyrir Bietigheim.
Handbolti Mest lesið Marlena vann Bakgarðshlaupið: „Ég hljóp bara“ Sport Fær sér ís í heita pottinum eftir tæplega 250 kílómetra hlaup Sport Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Haaland kastaði boltanum í hnakkann á Gabriel eftir jöfnunarmark City Fótbolti Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Enski boltinn Marlena er sigurvegari Bakgarðshlaupsins Sport Refsing fyrir að blóta gæti flýtt fyrir því að Verstappen hætti Formúla 1 Sér eftir að hafa valið Val fram yfir KR Íslenski boltinn Clark slegin í augað í frumraun Körfubolti Liðsfélagi Arnórs með bitför eftir andstæðing Fótbolti Fleiri fréttir Hörmulegur seinni hálfleikur varð þýsku meisturunum að falli Orri skoraði þrjú er Sporting valtaði yfir Íslendingaslaginn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Þjálfarinn í byrjunarliðinu: „Mér fannst þörf á smá aga í leikinn“ Sjö mörk Jóhönnu hjálpuðu til við að landa fyrsta sigrinum Uppgjörið: Fjölnir - HK 28-27 | Flautumarkið fékk ekki að standa og Fjölnir slapp með sigur Ihor fór mikinn í stórsigri Aftureldingar Fullkomin byrjun lærisveina Arnórs heldur áfram Ólafur með fjögur mörk í fyrsta sigri Karlskrona Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Arftaki Kristjáns óvænt hættur Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Elín Klara og Sara Sif sáu um Stjörnuna Slæm byrjun Vals hélt áfram í Garðabænum „Höfðum mýmörg tækifæri til að klára þennan leik miklu fyrr“ „Fyrst og fremst bara ekki nógu sáttur með mína menn“ Gísli Þorgeir bar af í Íslendingaslag kvöldsins Haukar áfram á toppnum með fullt hús stiga Fram áfram með fullt hús Bjarki Már og Orri Freyr með stórsigra í Meistaradeildinni Uppgjörið: FH - ÍBV 33-30 | Góður kafli í fyrri hálfleik skilaði sigri FH-inga Framarar flæktir í óskýrum reglum HSÍ: „Þetta er alveg galið dæmi“ Haukur komið að nítján mörkum í fyrstu tveimur leikjunum í Meistaradeildinni Selfoss átti lítið í Íslandsmeistara Vals „Stefnum á að vera í þessum efri hluta“ Uppgjörið: ÍR - ÍBV 22-22 | Heimakonur komnar á blað Haukur magnaður í sigri á Viktor Gísla og félögum Alfa Brá og Katrín Anna í landsliðið Tímabilið byrjar vel hjá Bjarka sem varð markahæstur í stórsigri Gummersbach gaf mikið eftir í seinni hálfleik Sjá meira