Körfubolti

Sjáðu svakalegar troðslur hjá 15 ára strák úr Keflavík

Anton Ingi Leifsson skrifar
Vísir/Skjáskot
Arnór Svansson er fimmtán ára strákur sem spilar körfubolta með Keflavík. Arnór hefur verið þekktur fyrir að kunna troða boltanum í körfuna og sýndi það svo sannarlega í gær.

Nettó-mótið í körfubolta fór fram í Keflavík og Njarðvík um helgina. Mótið er fyrir unga krakka í 1. - 5. bekk þar sem aðalmarkmiðið er að hafa gaman.

Í gærkvöldi var haldin kvöldvaka fyrir krakkana í TM-höllinni þar sem allskyns skemmtiatriði fóru fram.

Arnór var fenginn til þess að sýna krökkunum og öllum þeim sem mættir voru hvernig á að troða boltanum í körfuna. Troðslurnar voru margar hverjar afar smekklegar, en þær má sjá hér að neðan.

Myndbandið er fengið frá karfan.is.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×