Körfubolti

Lið Jóns Arnórs svo gott sem úr leik

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Jón Arnór í leik með Malaga.
Jón Arnór í leik með Malaga. Vísir/AFP
Unicaja Malaga er svo gott sem úr leik í Evrópukeppninni í körfubolta eftir að liðið tapaði fyrir CSKA Moskvu á heimavelli í kvöld, 99-75.

Jón Arnór Stefánsson var ekki í leikmannahópi Malaga vegna meiðsla en spænska liðið á aðeins tölfræðilegan möguleika á að komast áfram í 8-liða úrslit keppninnar úr þessu.

CSKA Mosvka er efst í F-riðli með níu sigra í ellefu leikjum en Malaga neðst með aðeins tvo sigra. Efstu fjögur liðin komast áfram í 8-liða úrslitin ásamt efstu fjórum liðunum í E-riðli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×