Gunnar og félagar komust ekki í úrslitakeppnina | Myndband Tómas Þór Þórðarson skrifar 11. mars 2015 08:00 Gunnar Ólafsson spilaði ekki í nótt. vísir/getty
Keflvíkingurinn Gunnar Ólafsson verður ekki fyrsti Íslendingurinn til að spila í NCAA-mótinu í bandarísku háskólakörfunni. Allavega ekki á þessu ári. Liðsfélagar Gunnars í St. Francis-háskólanum í Brooklyn spiluðu til úrslita í NEC-deildinni í nótt gegn Robert Morris-skólanum, en Gunnar var ekki í leikmannahópnum. Heimamenn í St. Francis, sem unnu sína deild með 15 sigra og þrjú töp, voru yfir í hálfleik, 35-29, og stefndi allt í að Robert Morris væri að tapa fjórða úrslitaleiknum á síðustu fimm árum. En gestirnir sóttu í sig veðrið í seinni hálfleik sem þeir unnu með níu stigum og leikinn með þremur stigum, 66-63. Þar með komu þeir í veg fyrir fyrstu ferð St. Francis í 64 liða úrslit háskólakörfuboltans, hið svokallaða „March Madness“. Tyreek Jewell, leikmaður St. Francis, fékk tækifæri til að jafna leikinn með þriggja stiga skoti þegar 2,4 sekúndur voru eftir en hann hitti ekki. Jewell var engu að síður besti leikmaður heimaliðsins í nótt og skoraði 19 stig. Í gær töpuðu Kristófer Acox og félagar hans í Furman-háskólanum úrslitaleiknum í suðurdeild háskólaboltans og því endanlega ljóst núna að enginn Íslendingur verður með í NCAA-mótinu að þessu sinni. Hér að neðan má sjá það helsta úr leiknum í nótt.
Körfubolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Fótbolti Setja pressu á Barcelona með sigri Fótbolti Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira