Handbolti

Guðjón Valur og félagar skoruðu 51 mark í kvöld

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Guðjón Valur Sigurðsson.
Guðjón Valur Sigurðsson. Vísir/AFP
Guðjón Valur Sigurðsson og félagar hans í Barcelona héldu sigurgöngu sinni áfram í spænsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Barcelona vann þá 22 marka sigur á Fertiberia Puerto Sagunto, 51-29, á heimavelli sínum Palau Blaugrana.

Guðjón Valur skoraði fimm mörk úr átta skotum í leiknum og var þriðji markahæsti leikmaður liðsins á eftir þeim Jesper Brian Noddesbo (8 mörk) og Nikola Karabatic (7 m0rk) sem náðir nýttu öll skotin sín í leiknum.

Guðjón Valur skoraði þrjú marka sinna úr hraðaupphlaupum og hann skoraði líka úr eina víti Börsunga í kvöld.

Barcelona hefur unnið 21 leik af 21 mögulegum í spænsku deildinni á leiktíðinni en liðið hefur nú átta stiga forskot á næsta lið sem er Ciudad de Logrono.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×