Körfubolti

Ellefu ára stelpa farin að troða | Myndband

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Engin hefur troðið jafnoft í WNBA og Brittney Griner.
Engin hefur troðið jafnoft í WNBA og Brittney Griner. Vísir/Getty
Ashley Watkins er örugglega nafn sem körfuboltaáhugafólk á eftir að heyra meira í framtíðinni en hún er þegar búin að slá í gegn á netinu.

Þessi ellefu ára stelpa lék sér nefnilega að því að troða eins og ekkert væri eðlilegra í leik með liði sínu í Suður-Karólínu fylki í Bandaríkjunum.

Karfan var reyndar aðeins níu fet eða 2,74 metrar en hefðbundin karfa er í 3,048 metra hæð.

Watkins treður þarna með tilþrifum í hraðaupphlaupi og njósnarar háskólaliðanna eru örugglega byrjaðir að hringja í hana nú þegar margir netmiðlar eru búnir að birta myndbandið hér fyrir neðan.

Þeir sem hafa skrifað um stelpuna eru viss um að hún gæti orðið yngsta konan til þess að troða í leik í Bandaríkjunum, það er á körfu í réttri hæð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×