Körfubolti

Martin valinn nýliði ársins í Brooklyn

Martin er hér í vörninni hjá LIU.
Martin er hér í vörninni hjá LIU. vísir/getty
Martin Hermannsson heldur áfram að safna viðurkenningum í Bandaríkjunum.

Hann hefur nú verið kosinn nýliði ársins af liðunum úr Brooklyn af Brooklyn Daily Eagle. Martin var með 10,1 stig, 3,8 fráköst og 3,3 stoðsendingar að meðaltali í leik með liði sínu LIU Brooklyn.

„Hann spilaði þannig að auðvelt var að gleyma því að hann væri nýliði," stendur meðal annars í umsögn um KR-inginn magnaða.

Martin var einnig valinn í fimm manna nýliðaúrval í NEC-deildinni.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×