Körfubolti

Sárt tap hjá Solna

Sigurður Gunnar í leik með Grindavík.
Sigurður Gunnar í leik með Grindavík. vísir/daníel
Sigurður Gunnar Þorsteinsson og félagar í Solna Vikings eru komnir í frí.

Liðið tapaði í kvöld, 90-93, fyrir Borås Basket og tapaði því rimmu liðanna í úrslitakeppni sænsku úrvalsdeildarinnar, 3-1.

Leikurinn í kvöld var æsispennandi en Borås var alltaf skrefi á undan í síðari hálfleik. Solna náði að minnka muninn í tvö stig, 90-92, þegar tíu sekúndur voru eftir. Borås tapaði boltanum þegar 6 sekúndur voru eftir en skot Solna-manna fór ekki niður þegar sekúnda var eftir af leiknum. Mikil dramatík.

Sigurður Gunnar skilaði sínu og vel það í kvöld. Hann skoraði 10 stig, tók 9 fráköst og gaf 2 stoðsendingar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×