Obama mætti ekki að horfa á frænku Michelle spila vegna hótunar Tómas Þór Þórðarson skrifar 24. mars 2015 13:45 Barack Obama ræðir við mág sinn Craig Robison á leik Leslie síðastliðinn laugardag. vísir/getty
Leslie Robinson, litla frænka Michelle Obama, eiginkonu Baracks Obama Bandaríkjaforseta, var hótað fyrir körfuboltaleik sem hún spilaði í NCAA-mótinu í gær. Leslie, sem er dóttir Craigs Robinson, bróður Michelle, spilar með Princeton Tigers sem framherji en hún er á fyrsta ári í skólanum. USA Today greinir frá því að íþróttadeild háskólans í Maryland, þar sem leikur Princeton og Maryland Terrapins fór fram, hafi borist átta mínútna löng skilaboð á símsvara. Þar sagði kona frá því að maður væri að keyra um háskólalóðina með Glock-skammbyssu og tengdi komu hans við körfuboltaleikinn og Michelle. Stúlkunni var sjálfri ekki sagt frá skilaboðunum en þjálfari Princeton-liðsins var látinn vita. Obama er mikill körfuboltaáhugamaður og mætti á fyrsta leik Princeton í NCAA-úrslitakeppninni þar sem Leslie reyndar spilaði ekki mínútu. Vegna hótunarinnar mætti forsetinn þó ekki á leikinn í gær. Öryggisgæsla var gríðarleg í kringum leikinn vegna hótunarinnar og ekki síður vegna þess að Sonia Sotomayor og Elena Kagen, hæstaréttardómarar í Bandaríkjunum, voru á leiknum. Princeton tapaði leiknum, 85-70, en þetta var fyrsta tap liðsins á leiktíðinni. Leslie kom ekkert við sögu í leiknum.
Körfubolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 Dagskráin í dag: Formúla 1, Bestu deildirnar, Sveindís Jane og NFL Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira