Körfubolti

Kanínur Craigs unnu stórsigur

Pedersen ásamt Finni Frey Stefánssyni, aðstoðarlandsliðsþjálfara og þjálfara KR.
Pedersen ásamt Finni Frey Stefánssyni, aðstoðarlandsliðsþjálfara og þjálfara KR. vísir/andri
Lið íslenska landsliðsþjálfarans Craig Pedersen byrjaði vel í úrslitakeppni danska körfuboltans í kvöld

Lið Pedersen, Svendborg Rabbits, vann þá stórsigur, 111-71, á Randers Cimbria í fyrsta leik liðanna í átta liða úrslitum.

Eins og tölurnar gefa til kynna voru yfirburðir Kanínanna miklar og staðan var 32-18 eftir fyrsta leikhluta. Svendborg gaf svo aldrei eftir.

Vinna þarf þrjá leiki til þess að komast í undanúrslitin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×