Drekarnir komnir í 2-0 forystu Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 20. mars 2015 19:52 Jakob og félagar í Sundsvall eru í góðri stöðu. Vísir/Valli
Sundsvall Dragons er í góðri stöðu í rimmu sinni í 8-liða úrslitum úrslitakeppni sænsku úrvalsdeildarinnar í körfubolta eftir sigur á LF Basket á heimavelli í kvöld, 94-77. Sundsvall, sem endaði í 5. sæti deildarinnar, er þar með komið með 2-0 forystu í rimmunni og þarf einn sigur til viðbótar til að tryggja sér sæti í undanúrslitunum. Jakob Sigurðarson skoraði sautján stig fyrir Drekana og var næststigahæsti leikmaður liðsins. Hlynur Bæringsson skoraði níu stig og tók tíu fráköst og Ægir Steinarsson skoraði fimm stig og gaf sex stoðsendingar. Ragnar Nathanelsson er einnig á mála hjá Sundsvall en kom ekki við sögu í kvöld, líkt og í fyrsta leiknum í rimmunni. Haukur Helgi Pálsson var í hópi stigahæstu leikmanna LF Basket en hann skoraði fjórtán stig á 37 mínútum, tók fimm fráköst og gaf fjórar stoðsendingar. Solna, lið Sigurðar Þorsteinssonar, er búið að jafna metin í sinni rimmu gegn Borås Basket eftir sigur í spennandi leik á heimavelli, 77-76. Þetta var öflugur sigur fyrir Solna sem endaði í sjöunda sæti deildarinnar í vetur. Borås varð í öðru sæti og fékk 50 stig í deildinni, en Solna 30. Sigurður Gunnar spiliaði í tæpar 20 mínútur í kvöld og skoraði níu stig og tók fjögur fráköst.Staðan í 8-liða úrslitunum: Södertälje Nässjö 2-0 Borås - Solna 1-1 Norrköping - Uppsala 1-1 LF Basket - Sundsvall 0-2
Körfubolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 Dagskráin í dag: Formúla 1, Bestu deildirnar, Sveindís Jane og NFL Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira