Handbolti

Tandri Már og félagar byrja umspilið vel

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Tandri Már Konráðsson.
Tandri Már Konráðsson. Vísir/Daníel
Tandri Már Konráðsson og félagar hans í Ricoh HK ætla sér að halda sæti sínu í sænsku deildinni og það lítur vel út eftir ellefu marka sigur í kvöld.

Ricoh HK vann 27-16 heimasigur á HK Aranäs í öðrum leik sínum í sex liða umspili um sæti í sænsku úrvalsdeildinni á næstu tímabili.

Ricoh HK hefur unnið tvo fyrstu leiki sína en þrjú efstu liðin fá að vera með í úrvalsdeildinni á næsta tímabili.

Tandri Már skoraði þrjú mörk úr sex skotum í leiknum og átti einnig tvær stoðsendingar á félaga sína.

Það var bara einn leikmaður Ricoh HK sem skoraði meira en íslenska skyttan en sigurinn var auðveldur og því dreifðist spilatíminn á milli manna.

Tandri Már skoraði fimm mörk í eins marks útisigri á OV Helsingborg HK í fyrstu umferðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×