Körfubolti

Tveir yfir 213 sm í æfingahóp karlalandsliðsins í körfubolta

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Tryggvi Snær Hlinason í leik með Þór í vetur.
Tryggvi Snær Hlinason í leik með Þór í vetur. Vísir/Stefán
Craig Pedersen, þjálfari A-landsliðs karla í körfubolta, hefur valið æfingahóp sinn fyrir fyrir Smáþjóðaleikana sem fram fara á Íslandi í byrjun júní.

Strákarnir hefja æfingar síðar í mánuðinum en fyrsti leikur karlalandsliðsins á Smáþjóðaleikunum er 3. júní.

Það vekur vissulega athygli að það eru tveir leikmenn yfir 213 sentímetra en það eru þeir Ragnar Ágúst Nathanaelsson (218 sm) og hinn sautján ára gamli Þórsari Tryggvi Snær Hlinason.

Tryggvi Snær Hlinason lék sitt fyrsta tímabil með Þór í 1. deildinni í vetur og var með 6,5 stig, 4,6 fráköst og 2,8 varin skot að meðaltali á 17,4 mínútum.

Tryggvi er einn af níu nýliðum í hópnum en hinir eru Dagur Kár Jónsson, Emil Barja, Grétar Ingi Erlendsson, Jón Axel Guðmundsson, Kristófer Acox, Matthías Orri Sigurðarson, Pétur Rúnar Birgisson og Tómas Heiðar Tómasson.

Frank Booker yngri er ekki í æfingahópnum en hann hefur verið að standa sig vel með Oklahoma Sooners í bandaríska háskólakörfuboltanum.

Elvar Már Friðriksson, Martin Hermannsson og Kristófer Acox eru hinsvegar allir með en þeir spiluðu líka 1. deildarbolta í háskólunm í Bandaríkjunum.



Æfingahópur karla fyrir Smáþjóðaleikana:

Axel Kárason – Næstved, Danmörk · Framherji · f. 1983 · 192 sm

Brynjar Þór Björnsson - KR · Bakvörður f. 1988 · 192 sm

Dagur Kár Jónsson - Stjarnan · Bakvörður · f. 1995 · 186 sm

Darri Hilmarsson - KR · Framherji · f. 1987 · 190 sm

Elvar Már Friðriksson – LIU University · Bakvörður · f. 1994 · 182 sm

Emil Barja - Haukar · Bakvörður · f. 1991 · 193 sm

Finnur Atli Magnússon - KR · Miðherji · f. 1985 · 208 sm

Grétar Ingi Erlendsson – Þór Þorlákshöfn · Miðherji · f. 1983 · 198 sm

Haukur Helgi Pálsson – LF Basket, Svíþjóð· Framherji · f. 1992 · 198 sm

Helgi Már Magnússon – KR · Framherji · f. 1992 · 192 sm

Hlynur Bæringsson – Sundsvall Dragons, Svíþjóð · Miðherji · 1982 · 200 sm 

Hörður Axel Vilhjálmsson – Mitteldeutscher · Bakvörður · f. 1988 · 190 sm

Jakob Örn Sigurðarson - Sundsvall Dragons · Bakvörður f. 1982 · 190 sm

Jón Arnór Stefánsson - Unicaja Malaga, Spánn · Bakvörður · f. 1982 · 196 sm

Jón Axel Guðmundsson - Grindavík · Bakvörður · f. 1996 · 178 sm

Kristófer Acox – Furman University USA / KR · Framherji · f. 1993 · 196 sm

Logi Gunnarsson – Njarðvík · Bakvörður f. 1981 · 192 sm

Martin Hermannsson – LIU University · Bakvörður · f. 1994 · 190 sm

Matthías Orri Sigurðarson –  ÍR · Bakvörður · f. 1994 · 185 sm.

Ólafur Ólafsson - Grindavík · Framherji · f. 1990 · 194 sm

Pavel Ermolinskij – KR · Bakvörður · f. 1987 · 202 sm

Pétur Rúnar Birgisson – Tindastóll · Bakvörður · f. 1996 · 185 sm

Ragnar Ágúst Nathanaelsson – Sundsvall Dragons  · Miðherji · f. 1991 · 218 sm

Sigurður Ágúst Þorvaldsson - Snæfell · Framherji · f. 1980 · 202 sm

Sigurður Gunnar Þorsteinsson - Solna Vikings · Miðherji · f. 1988 · 204 sm

Sveinbjörn Claessen – ÍR · Bakvörður · f. 1986 · 194 sm

Tómas Heiðar Tómasson – Þór Þ. · Bakvörður · f. 1991 · 187 sm

Tryggvi Snær Hlinason – Þór Akureyri · Miðherji · f. 1997 · 213 sm

Ægir Þór Steinarsson - Sundsvall Dragons · Bakvörður · f. 1991 · 182 sm

 

Þjálfari liðsins er Craig Pedersen. Aðstoðarþjálfarar eru Arnar Guðjónsson og Finnur Freyr Stefánsson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×