Handbolti

Omeyer áfram hjá PSG til ársins 2017

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Omeyer á sínu fyrsta tímabili með Paris Saint-Germain.
Omeyer á sínu fyrsta tímabili með Paris Saint-Germain. vísir/getty
Markvörðurinn Thierry Omeyer hefur framlengt samning sinn við Paris Saint-Germain til ársins 2017.

Omeyer, sem er 38 ára, kom til Paris frá Montpellier síðasta sumar en hann mun því verja mark Parísarliðsins þangað til hann verður fertugur.

Omeyer varð bikarmeistari með Paris á dögunum en liðið er í 2. sæti frönsku deildarinnar, einu stigi á eftir Montpellier.

Omeyer hefur verið besti markvörður heims um langt árabil og unnið allt sem hægt er að vinna með félagsliðum og franska landsliðinu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×