Golf

Bowditch með tveggja högga forystu

Steven Bowditch undirbýr hér pútt á fyrstu holu.
Steven Bowditch undirbýr hér pútt á fyrstu holu. vísir/getty
Ástralinn Steven Bowditch er með tveggja högga forystu fyrir síðasta daginn á Byron Nelson golfmótinu í Texas. Bowditch lék á fjórum höggum undir pari vallarins í gær og er á 13 höggum undir pari samtals.

Dustin Johnson átta besta hring allra í gær þegar hann lék á 62 höggum, eða sjö höggum undir pari vallarins. Johnson er í 2. sæti fyrir lokadaginn ásamt fjórum öðrum kylfingum.

"Þetta var góður dagur, ég lék nokkuð vel. Ég náði oftast að halda boltanum á braut og það er þægilegt að vera í þessari stöðu fyrir lokadaginn," sagði Steven Bowditch að loknum þriðja degi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×