Körfubolti

Átta milljónir hafa safnast fyrir körfuboltalandsliðið

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Kempurnar Einar Bollason og Kolbeinn Pálsson ásamt landsliðsmönnunum Hlyni Bæringssyni og Loga Gunnarssyni.
Kempurnar Einar Bollason og Kolbeinn Pálsson ásamt landsliðsmönnunum Hlyni Bæringssyni og Loga Gunnarssyni. vísir/ernir
„Þetta er búið að ganga alveg ótrúlega vel hjá okkur,“ segir körfuboltagoðsögnin Einar Bollason en hann er hluti af hópi sem kallar sig Körfuboltafjölskylduna.

Hún hefur verið að safna peningum síðan í september til þess að styðja við bakið á karlalandsliðinu sem er á leið á EM í september.

Velunnarar körfuboltans gátu skuldbundið sig til þess að greiða litla upphæð á mánuði í tíu mánuði. Margt smátt gerir eitt stórt og það á svo sannarlega við í þessu tilviki.

„Þetta er búið að vera að malla inn í vetur og við erum búnir að safna um átta milljónum króna. Við settum upprunalega stefnuna á fimm milljónir en þetta fór langt fram úr okkar væntingum,“ segir Einar glaður í bragði.

„Fyrst þetta gekk svona vel þá höfum við sett stefnuna á tíu milljónir. Við erum að vonast eftir því að ná fleirum inn núna á næstu misserum.

„Ætli það séu ekki um 200 manns sem hafa skráð sig í þetta átak og svo nokkur fyrirtæki. Það er alls konar fólk að taka þátt og það reynir að virkja fólkið í kringum sig.“

Samstaðan í körfuboltahreyfingunni er augljóslega mikil og hún yljar Einari um hjartarætur.

„Það er svo ótrúlega gaman að þessu. Ég hef talað við gamla handboltamenn sem spyrja bara hvernig við förum eiginlega að þessu. Við byrjuðum að safna um leið og strákarnir komust á mótið enda er þetta dýrt verkefni. Þetta er söguleg stund og margir vilja hjálpast að sem er yndislegt.“

Einar og hans gömlu vinir ætla ekki að láta leiki íslenska liðsins í Berlín fram hjá sér fara.

„Ég fer sem og frúin og allir gömlu KR-ingarnir. Við skráðum okkur um leið og það er allt klárt. Það ætla bara allir að fara til Berlínar og þetta verður alveg stórkostlegt.

„Ég er að reikna með svona 1.000 Íslendingum á svæðinu. Þetta verður sögulegt og afar gaman að þessu öllu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×