Handbolti

Alfreð samdi við Brasilíumann

Það verður áhugavert að sjá hvernig gengur hjá Alfreð með Brasilíumanninn.
Það verður áhugavert að sjá hvernig gengur hjá Alfreð með Brasilíumanninn. vísir/getty
Alfreð Gíslason er enn að styrkja leikmannahóp sinn hjá Kiel og hefur nú fetað ótroðnar slóðir.

Hann er nefnilega búinn að semja við brasilíska línumanninn Rogerio Moraes Ferreira. Þetta er 21 árs gamall leikmaður sem er 204 sentimetrar að hæð.

„Handbolti hefur náð miklum vinsældum í Brasilíu á síðustu árum. Ég er í góðu sambandi við landsliðsþjálfarann Jordi Ribeiro sem benti mér á þennan strák. Þetta er líklega efnilegasti leikmaður heims í sínni stöðu," sagði Alfreð. Stór orð hjá Alfreð.

Ferreira æfði með Kiel í síðasta mánuði og stóð sig nógu vel til þess að fá samning. Hann fær eins árs samning með möguleika á tveggja ára framlengingu. Þá þarf hann að standa sig.

„Við erum mjög spenntir fyrir þessum strák og það verður gaman að vinna með honum. Svo verðum við að sjá hvernig til tekst," sagði Alfreð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×