Evrópumeistararnir sluppu með skrekkinn Tómas Þór Þórðarson skrifar 25. júní 2015 20:32 Spænsku konurnar fagna innilega í leikslok. vísir/getty
Titilvörn Evrópumeistara Spánar er enn á lífi eftir dramatískan sigur á Svartfjallalandi, 75-74, í átta liða úrslitum Evrópumóts kvenna í körfubolta í dag. Mótið fer fram í Rúmeníu og í Ungverjalandi. Svartfellska liðið spilaði frábærlega í leiknum og náði eins stigs forskoti, 74-72, með þriggja stiga körfu þegar 20 sekúndur voru eftir af leiknum. Anna Cruz, leikmaður spænska liðsins, bauð upp á flott tilþrif í næstu sókn þegar hún skoraði af harðfylgi og fékk vítaskot að auki. Hún hitti úr því og kom Spáni einu stigi yfir þegar níu sekúndur voru eftir. Svartfellingar treystu á Angelicu Robinson í lokasókninni, en hún skoraði flest sig liðsins eða 23 stig. Robinson hitti ekki en Aleksandra Vujovic náði frákastinu og fékk einn séns í viðbót til að tryggja Svartfjallalandi sigur.Sadrine Gruda var best í liði Frakklands í kvöld.vísir/gettySkot hennar var aftur á móti varið af hinni mögnuðu Alba Torrens sem var stigahæst allra á vellinum í dag með 28 stig. Dramatískur sigur Spánverja í höfn og fögnuðu meistararnir mikið í leikslok. Spánn mætir Frakklandi í undanúrslitum, en Frakkar unnu Rússa, 77-74, í spennandi leik í kvöld. Sadrine Gruda var stigahæst hjá franska liðinu með 23 stig auk þess sem hún gaf tvær stoðsendingar. Epipanny Prince, bandarískur leikmaður í liði Rússlands, var þó stigahæst allra með 31 stig og fimm fráköst. Undanúrslitin fara fram á morgun en í hinum undanúrslitaleiknum mætast Serbía og Hvíta-Rússland.
Körfubolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 Dagskráin í dag: Formúla 1, Bestu deildirnar, Sveindís Jane og NFL Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira