Körfubolti

Ísland fékk skell gegn Eistum

Anton Ingi Leifsson skrifar
Sara Rún var stigahæst hjá Íslandi í dag.
Sara Rún var stigahæst hjá Íslandi í dag. vísir/stefán
Ísland steinlá fyrir Eistlandi í lokaleik á Norðurlandamóti U20 kvenna, 75-45, en Ísland tapaði öllum þremur leikjum sínum á mótinu.

Eistland byrjaði af miklum krafti og var tíu stigum yfir eftir fyrsta leikhlutann, 20-10. Í hálfleik var svo staðan 41-28 og ljóst að róðurinn yrði þungur í síðari hálfleik.

Þriðja leikhlutann vann svo Eistland með ellefu stigum, 17-6, en lokatölur urðu 30 stiga sigur Eista, 75-45. Afhroð hjá íslensku stelpunum.

Sara Rún Hinriksdóttir var stigahæst hjá íslensku stelpunum með fimmtán stig, en auk þess tók hún þrjú fráköst. Sandra Lind Þrastardóttir kom næst með tíu stig, sex fráköst og auk þess gaf hún tvær stoðsendingar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×