Körfubolti

Sigurður Gunnar leikur í Grikklandi í vetur

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Sigurður lék með Grindavík áður en hann fór í atvinnumennsku í fyrra.
Sigurður lék með Grindavík áður en hann fór í atvinnumennsku í fyrra. vísir/vilhelm
Körfuboltamaðurinn Sigurður Gunnar Þorsteinsson hefur skrifað undir eins árs samning við gríska B-deildarliðið Machites BC frá Þessalóniku.

Sigurður lék með Solna Vikings í Svíþjóð í fyrra en það var hans fyrsta tímabil í atvinnumennsku. Félagið var hins vegar í miklum fjárhagsvandræðum og þurfti að draga sig úr keppni í efstu deild fyrir þetta tímabil.

Sigurður er annar landsliðsmaðurinn á skömmum tíma sem skrifar undir samning við lið í Grikklandi en fyrr í sumar gerði Hörður Axel Vilhjálmsson eins árs samning við Trikala BC sem leikur í efstu deild þar í landi.

Sigurður var í æfingahópi íslenska landsliðsins en þurfti að bíta í það súra epli að komast ekki í lokahópinn sem fór á EuroBasket 2015.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×