Handbolti

Mikilvægur sigur Bergischer

Anton Ingi Leifsson skrifar
Arnór gerði þrjú mörk í dag.
Arnór gerði þrjú mörk í dag. vísir/valli
Bergischer vann mikilvægan sigur á TuS N-Lübbecke í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag, en lokatölur urðu tveggja marka sigur Bergischer, 30-28.

Heimamenn í Bergischer voru sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og leiddu þeir með fjórum mörkum í hálfleik; 19-15.

Í síðari hálfleik héldu þeir forystunni allt til enda þrátt fyrir að TuS N-Lübbecke hafi sótt að þeim. Lokatölur 30-28.

Annar sigur Bergischer á tímabilinu í sjö leikjum, en Arnór Þór Gunnarsson gerði tvö mörk fyrir Bergischer. Björgvin Páll Gústavsson stóð vaktina í markinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×