Handbolti

Auðvelt hjá Barcelona | Guðjón Valur með fjögur mörk

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Guðjón Valur skoraði fjögur mörk í kvöld.
Guðjón Valur skoraði fjögur mörk í kvöld. mynd/barcelona
Barcelona átti ekki í miklum vandræðum með að leggja Frigoríficos Morrazo að velli í spænsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Lokatölur 34-23, Börsungum í vil.

Guðjón Valur Sigurðsson skoraði fjögur mörk fyrir Barcelona en landsliðsfyrirliðinn er á sínu öðru tímabili með Katalóníuliðinu sem hefur gríðarlega yfirburði á Spáni.

Aitor Ariño Bengoechea var markahæstur í liði Barcelona með sex mörk en Cedric Sorhaindo og Guðjón Valur komu næstir með fjögur mörk hvor.

Barcelona hefur unnið alla þrjá leiki sína í spænsku deildinni til þessa en liðið vann alla þá titla sem í boði voru á síðasta tímabili.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×