Handbolti

Ljónin með fullt hús stiga

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Alexander og félagar hafa unnið alla fimm leiki sína í þýsku deildinni.
Alexander og félagar hafa unnið alla fimm leiki sína í þýsku deildinni. vísir/getty
Einn leikur fór fram í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Rhein-Neckar Löwen sótti þá annað Íslendingalið, Bergischer, heim og sneri aftur til Mannheim með bæði stigin í farteskinu. Lokatölur 21-24, Löwen í vil.

Alexander Petersson skoraði eitt mark fyrir Ljónin en Stefán Rafn Sigurmannsson komst ekki á blað. Andy Schmid var atkvæðamestur hjá Löwen með átta mörk en liðið er með fullt hús stiga á toppi deildarinnar.

Arnór Þór Gunnarsson skoraði þrjú mörk fyrir Bergischer en Björgvin Páll Gústavsson varði sjö skot í markinu.

Bergischer er með tvö stig í 16. sæti deildarinnar en liðið hefur aðeins unnið leik af fimm það sem af er tímabili.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×