Handbolti

Haukar í erfiðri stöðu á Ítalíu

Anton Ingi Leifsson skrifar
Adam Haukur í baráttunni á Ítalíu í dag.
Adam Haukur í baráttunni á Ítalíu í dag. vísir/adfjfjrjjrjj789
Haukar eru í erfiðri stöðu fyrir síðari leikinn gegn SSV Bozen Loacker í EHF-keppninni, en Haukar töpuðu fyrri leiknum 30-24 á Ítalíu í dag.

Liðin leika bæði leiki sína á Ítalíu, en síðari leikurinn fer fram á morgun. Haukarnir voru 17-13 undir í hálfleik og Ítalarnir bættu stöðu sína í síðari hálfleik.

Elías Már Halldórsson og Tjörvi Þorgeirsson voru markahæstir með fimm mörk hvor og Adam Haukur Baumruk gerði fjögur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×