Handbolti

Guðjón Valur markahæstur í stórsigri Barcelona

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Guðjón Valur skoraði sjö mörk í kvöld.
Guðjón Valur skoraði sjö mörk í kvöld. vísir/getty
Barcelona vann stórsigur, 28-40, á Bada Huesca í spænsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Bada Huesca hélt í við Börsunga lengi vel í fyrri hálfleik en þegar þrjár mínútur voru til hálfleiks var staðan 17-17. En Barcelona skoraði þrjú síðustu mörk fyrri hálfleiks og þrjú fyrstu mörk seinni hálfleiks og náði sex marka forystu, 17-23.

Eftir þetta var aldrei spurning spurning hvorum megin sigurinn myndi enda. Barcelona skoraði hvert markið á fætur öðru og vann að lokum 12 marka sigur, 28-40.

Guðjón Valur Sigurðsson var markahæstur í liði Barcelona í kvöld en landsliðsfyrirliðinn skoraði sjö mörk úr átta skotum. Wael Jallouz og Víctor Tomás komu næstir með fimm mörk hvor.

Barcelona er með fullt hús stiga (8) á toppi spænsku deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×