Dýrkeypt að hvíla Jakob í upphafi fjórða | Borås tapaði Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. október 2015 18:49 Jakob Örn Sigurðarson í leik með íslenska landsliðinu. Vísir/Valli
Jakob Örn Sigurðarson og félagar í Borås töpuðu toppslagnum á móti Södertälje Kings í uppgjöri tveggja taplausra liða í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld. Södertälje Kings vann á endanum tíu stiga sigur á Borås, 75-65, en jafnt var á flestum tölum fram í fjórða leikhluta. Södertälje Kings lagði grunninn að sigri sínum með því að skora fjórtán fyrstu stigin í lokaleikhlutanum eftir að Borås var með eins stigs forystu fyrir hann. Leikur Borås hrundi í lokin og það hafði ekki góð áhrif að Jakob settist á bekkinn í upphafi fjórða leikhlutans. Jakob Örn Sigurðarson var með 16 stig, 3 stoðsendingar og 3 fráköst í leiknum en hann hitti úr 2 af 6 þriggja stiga skotum sínum og öllum sex vítunum. Jakob var stigahæstur í sínu liði. Jakob skoraði fimm af fyrstu níu stigum Borås-liðsins í leiknum en Borås náði mest sjö stiga forskoti í fyrsta leikhlutanum, 14-7. Staðan var hinsvegar jöfn, 18-18, við lok hans. Borås og Södertälje skiptust á að vera með forystuna í öðrum leikhlutanum en Södertälje var einu stigi yfir í hálfleik, 37-36. Borås skoraði fjögur fyrstu stig seinni hálfleiksins og komst í 40-37 en þá tók við 8-0 sprettur Södertälje-manna. Borås svaraði strax með tveimur þriggja stiga körfum og komst aftur yfir, 46-45. Jakob skoraði annan þristinn og átti stoðsendinguna fyrir hinn. Spennan hélst út leikhlutann en Borås var með eins stigs forskot fyrir lokaleikhlutann, 59-58. Jakob byrjaði fjórða leikhlutann á bekknum en Södertälje skoraði sjö fyrstu stigin í honum og komst í 65-59 eftir aðeins þriggja mínútna leik. Skaðinn var hinsvegar skeður og Södertälje skoraði á endanum 16 stig í röð áður en Borås komst á blað í lokaleikhlutanum. Jakob braut loksins ísinn með því að skora úr tveimur vítum eftir rúmlega sjö mínútna leik.
Körfubolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Fótbolti Setja pressu á Barcelona með sigri Fótbolti Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Setja pressu á Barcelona með sigri Sjáðu mark Brynjars Inga og stoðsendingu Viðars Ara „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ „Við fórum beint úr því að vera ömurlegir í frábærir“ Þriðja markalausa jafntefli Juventus í röð „Það hlaut að koma að því“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Rúnar Þór lagði upp og setti boltann í eigið net Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Bayern búið að skora tuttugu mörk í síðustu þremur leikjum Selfoss og KFA mætast í úrslitum Ásdís Karen skoraði í þriðja sigri Lillestrøm í röð Sjö KR-ingar heiðraðir á Anfield Orri í byrjunarliði Real Sociedad sem mistókst enn og aftur að skora Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Lið Ísaks og Valgeirs bjargaði stigi á dramatískan hátt Endurkoma hjá Dagnýju „Er ekki bara kominn tími til að breyta þessu?“ Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed „Okkar að stöðva drauma þeirra í fæðingu“ Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Sjá meira