Körfubolti

Hlynur með tvennu í sigri

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Hlynur Bæringsson.
Hlynur Bæringsson. Vísir
Hlynur Bæringsson skoraði 20 stig og tók tólf fráköst þegar lið hans, Sundsvall Dragons, vann góðan útisigur á Nässjö í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld, 88-77.

Hlynur spilaði að venju mikið en hann hvíldi í aðeins 59 sekúndur í kvöld. Hann nýtti sex af tíu skotum sínum inni í teig og tvö af fjórum þriggja stiga skotum. Hann stal boltanum einnig þrívegis í leiknum.

Jakob Sigurðarson, fyrrum liðsfélagi Hlyns hjá Drekunum, skoraði sextán stig fyrir Borås Basket sem vann Uppsala, 92-78. Jakob tók þrjú fráköst í leiknum.

Borås hefur unnið sex af fyrstu sjö leikjum sínum á tímabilinu og er í öðru sæti deildarinnar með tólf stig, tveimur á eftir Södertälje. Sundsvall Dragons er svo í fimmta sætinu með sex stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×