Körfubolti

Jakob aftur með tuttugu stiga leik og sigur í Evrópukeppninni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jakob Örn Sigurðarson í leik með íslenska landsliðinu.
Jakob Örn Sigurðarson í leik með íslenska landsliðinu. Vísir/Valli
Jakob Örn Sigurðarson og félagar í sænska liðinu Borås Basket byrja vel í FIBA Europe Cup því liðið sótti tvö stig til Austurríkis í kvöld.

Borås Basket vann þá fimm stiga sigur á Kapfenberg Bulls, 85-80, og er því með fullt hús eftir tvo fyrstu leiki sína í Evrópukeppninni í ár.

Jakob fylgdi eftir góðum fyrsta leik með því að skora yfir tuttugu stig annan Evrópuleikinn í röð en hann var með 22 stig, 5 fráköst og 3 stoðsendingar í kvöld.

Jakob skoraði 21 stig í fyrsta leiknum þegar liðið vann öruggan sigur á FoxTown Cantu 101-81.

Jakob var í miklu stuði fyrir utan þriggja stiga línuna í kvöld en hann hitti úr 6 af 10 skotum sínum fyrir utan hana. Jakob skoraði helminginn af þristum síns liðs í kvöld.

Jakob skoraði fimm af fyrstu sex stigum Borås-liðsins í leiknum en Borås náði ekki að fylgja því eftir.

Leikmenn Kapfenberg Bulls voru sterkari, komust í 15-8 og voru 18-13 yfir eftir fyrsta leikhlutann.

Borås vann sig inn í leikinn í örðum leikhlutanum. Jakob endaði síðan hálfleikinn á því að smella niður þriggja stiga skoti og koma Borås Basket yfir í 38-37 fyrir hálfleik. Jakob var kominn með tíu stig í hálfleik.

Borås vann þriðja leikhlutann 23-18 og var komið með frumkvæðið í leiknum enda sex stigum yfir fyrir lokaleikhlutann,

Jakob kom Borås í 68-60 þegar 7:48 voru eftir en hann var þá kominn með 22 stig í leiknum. Það leit út fyrir að Borås væri að landa öruggum sigri en annað kom á daginn.

Liðsmenn Kapfenberg Bulls breyttu stöðunni úr 60-68 í 72-68 og við tóku æsispennandi lokamínútur.

Borås-liðið var hinsvegar sterkara á lokamínútunum og tryggði sér góðan útisigur.


Tengdar fréttir

Annar tuttugu stiga leikur Jakobs á tímabilinu

Jakob Örn Sigurðarson og félagar í Borås Basket komust aftur á sigurbraut í kvöld þegar liðið vann afar sannfærandi heimasigur á Jämtland Basket í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta.

Jakob stigahæstur í sigri Borås

Jakob Örn Sigurðarson var stigahæstur í liði Borås Basket sem vann 11 stiga sigur, 82-71, á Malbas í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×