Handbolti

Alfreð sagður vera að næla í Santos

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Santos í leik með Gummersbach.
Santos í leik með Gummersbach. vísir/getty

Austurríska hornamaðurinn Raul Santos er sagður vera á leið til Alfreðs Gíslasonar í Kiel.

Santos hefur verið orðaður við Kiel lengi en hann leikur nú fyrir fyrrum félag Alfreðs, Gummersbach.

Kiel var sagt ætla að fá hann árið 2017 en þar sem Dominik Klein er að fara til Nantes í Frakklandi vill Alfreð fá Santos strax næsta sumar.

Fjölmiðlar í Köln segja að Kiel sé búið að ná samkomulagi um kaupverð á Santos sem var með samning til ársins 2017.

Santos hefur verið markahæsti, eða með markahæstu mönnum, í þýsku deildinni síðustu tímabil.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×