Handbolti

Hannover og Kiel unnu sína leiki - Bergischer tapaði illa

Stefán Árni Pálsson skrifar
Alfreð Gíslason er þjálfari Kiel.
Alfreð Gíslason er þjálfari Kiel. Vísir/Getty
Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar í Kiel voru ekki í neinum vandræðum með Lemgo í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik í kvöld en þeir unnu öruggan sigur 34-26.

Hannover Burgdorf vann síðan fínan sigur á Wetzlar, 28-24, en Rúnar Kárason skoraði þrjú mörk fyrir Hannover í leiknum.

Þá tapaði Bergischer fyrir Göppingen, 29-22, á þeirra eigin heimavelli. Björgvin Páll Gústafsson var í markinu hjá Bergischer í leiknum.

Kiel er í öðru sæti deildarinnar, Hannover í því níunda og Bergischer í því 15.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×