Handbolti

Ólafur Bjarki öflugur í jafnteflisleik

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Ólafur Bjarki Ragnarsson.
Ólafur Bjarki Ragnarsson.
Íslendingaliðið Eisenach nældi í mikilvægt jafntefli í þýsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Þá gerði liðið 30-30 jafntefli á útivelli gegn Stuttgart. Þetta var leikur sem mátti ekki tapast og tvö stig hefðu gert mikið fyrir Eisenach.

Eisenach er í fallsæti og hefði komist upp úr fallsæti með sigri. Eitt stig gerir það þó að verkum að aðeins eitt stig þarf til að komast úr fallsæti og aðeins eru þrjú stig í lið Stuttgart.

Leikurinn var æsispennandi og bæði lið gátu tryggt sér sigur undir lokin en höfðu ekki erindi sem erfiði.

Ólafur Bjarki Ragnarsson skoraði fjögur mörk úr fjórum skotum í leiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×