Handbolti

Kristianstad enn með fullt hús stiga

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ólafur byrjar vel með Kristianstad.
Ólafur byrjar vel með Kristianstad. mynd/heimasíða kristianstad
Sigurganga Kristianstad í sænsku úrvalsdeildinni í handbolta heldur áfram en í kvöld bar liðið sigurorð af botnliði Drott, 24-31.

Ólafur Guðmundsson skoraði fimm mörk fyrir Kristianstad sem hefur unnið alla 17 deildarleiki sína á tímabilinu. Liðið er með sjö stiga forystu á Alingsås á toppi deildarinnar.

Leikurinn var jafn framan af en Kristianstad tók yfir seinni hluta fyrri hálfleiks og fór með þriggja marka forystu, 10-13, inn í hálfleikinn.

Liðið gerði svo út um leikinn með því að byrja seinni hálfleikinn á 10-4 kafla og ná 11 marka forystu, 14-23.

Eftir þetta var sigurinn aldrei í hættu og svo fór að Ólafur og félagar unnu, 24-31.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×