Handbolti

Barcelona fór örugglega áfram í spænska bikarnum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Guðjón Valur skoraði tvö mörk í leiknum.
Guðjón Valur skoraði tvö mörk í leiknum. vísir/epa
Barcelona er komið áfram í 8-liða úrslit spænsku bikarkeppninnar í handbolta eftir öruggan sigur, 25-43, á Puerto Sagunto í kvöld.

Eins og tölurnar gefa til kynna höfðu Börsungar mikla yfirburði í leiknum en þeir þeir skoruðu hvorki fleiri né færri en 25 mörk í fyrri hálfleik, eða nánast mark á mínútu.

Guðjón Valur Sigurðsson skoraði tvö mörk úr jafnmörgum skotum en skotnýting Barcelona í leiknum var frábær, eða 71,7%.

Marko Kopljar var markahæstur í liði Barcelona með átta mörk, Jesper Noddesbo og Víctor Tomás komu næstir með sex mörk hvor.

Barcelona er ríkjandi bikarmeistari en liðið hefur alls unnið bikarkeppnina 19 sinnum, oftast allra liða á Spáni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×