Handbolti

Aron skoraði tvö af flottustu mörkum Meistaradeildarinnar á árinu

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Aron Pálmarsson, landsliðsmaður í handbolta, skoraði tvö af 30 flottustu mörkum Meistaradeildar Evrópu í handbolta á árinu 2015.

Meistaradeildin er búin að taka saman 30 flottustu mörkin og birta á Youtube-síðu sinni en Aron er eini Íslendingurinn sem kemur marki á listann. Þetta eru mörk frá seinni hluta síðasta tímabils og fyrri hluta þessa tímabils.

Aron á 21. flottasta markið sem hann skoraði fyrir Kiel á móti verðandi samherjum sínum í Veszprém á síðustu leiktíð og svo á hann einnig 9. flottasta markið sem hann skoraði á dögunum fyrir Veszprém á sínum gamla heimavelli í Kiel.

Flottasta markið er aukakastið ótrúlega sem Dusko Celica skoraði af löngu færi eftir að venjulegum leiktíma fyrir lokið fyrir PPD Zagreb en það ruglaða mark kom liðinu í 16 liða úrslit Meistaradeildarinnar á síðustu leiktíð.

Í spilaranum hér að ofan má sjá 30 flottustu mörkin í Meistaradeildinni árið 2015.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×