Jakob og félagar upplifðu martröð í þriðja leikhlutanum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. janúar 2016 19:43 Jakob Sigurðarson. Vísir/Andri Marinó
Jakob Sigurðarson og félagar hans í sænska liðinu Borås Basket töpuðu með 28 stiga mun á móti tyrkneska félaginu Türk Telekom, 114-86, í Evrópukeppninni, FIBA Europe Cup, í Boråshallen í kvöld. Þetta leit mjög vel út fyrir sænska liðið í hálfleik en Tyrkir fóru afar illa með Jakob og félaga í þriðja leikhlutanum sem leikmenn Türk Telekom unnu á endanum með 28 stigum, 40-12. Eftir þennan skelfilega þriðja leikhluta var á brattan að sækja fyrir Svíana og Tyrkir lönduðu öruggum sigri. Jakob Sigurðarson var með 11 stig, 4 stoðsendingar og 5 fiskaðar villur í kvöld en aðeins 2 af 12 skotum hans rötuðu rétta leið. Türk Telekom hefur þar með unnið tvo fyrstu leiki sína í riðlinum en Borås Basket á enn eftir að fagna sigri á þessu stigi keppninnar. Borås Basket vann fyrsta leikhlutann 29-27 og var fimm stigum yfir í hálfleik, 56-51. Jakob var kominn með 7 stig og 3 stoðsendingar eftir fyrri hálfleikinn. Borås-liðið byrjaði seinni hálfleikinn mjög illa og Tyrkir tóku frumkvæðið í leiknum með því að vinna fyrstu fimm mínútur þriðja leikhlutans 23-10. Türk Telekom var síðan 23 stigum yfir fyrir lokaleikhlutann, 91-68, og úrslit leiksins svo gott sem ráðin. Borås Basket tapaði illa fyrir Telenet Oostende í fyrsta leiknum í milliriðlum en liðunum í 32 liða úrslitunum er skipt niður í átta fjögurra liða riðla og komast tvö efstu liðin í sextán liða úrslit.
Körfubolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Formúla 1, Bestu deildirnar, Sveindís Jane og NFL Sport Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira