Sigurgangan heldur áfram hjá Kanínunum hans Arnars Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. janúar 2016 19:55 Arnar Guðjónsson og Craig Pedersen stýra hér íslenska landsliðinu. Vísir/Andri Marinó
Arnar Guðjónsson og lærisveinar hans í Svendborg Rabbits unnu fimmtán stiga útisigur á SISU, 104-89, í dönsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld. Svendborg Rabbits liðið hefur þar með unnið þrjá leiki í röð og ennfremur sex af síðustu sjö leikjum sínum í deildinni. Axel Kárason spilaði tæpar 24 mínútur og var með 6 stig, 7 fráköst og 2 stoðsendingar á þeim. Bandaríkjamaðurinn Brandon Rozzell var allt í öllu með 33 stig og 6 stoðsendingar. Svendborg Rabbits vann fyrsta leikhlutann 29-26 og var síðan komið ellefu stigum yfir í hálfleik, 55-44. SISU beit aðeins frá sér í seinni hálfleiknum og munurinn var kominn niður í sjö stig í lokaleikhlutanum. Leikmenn Svendborg gáfu þá aftur í og kláruðu leikinn sannfærandi. Arnar Guðjónsson tók við Kanínunum af íslenska landsliðsþjálfaranum Craig Pedersen í nóvember. Liðið tapaði fyrstu tveimur leikjunum undir hans stjórn en hefur síðan unnið sjö af níu leikjum. Eina tap liðsins frá því í byrjun desember var eins stigs tap á útivelli á móti Næstved.
Körfubolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti Dagskráin í dag: Formúla 1, Bestu deildirnar, Sveindís Jane og NFL Sport Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira