Þjálfari Martins: Framtíðin er mjög björt fyrir þennan unga mann Tómas Þór Þórðarson skrifar 28. janúar 2016 11:15 Martin Hermannsson í leik með LIU. mynd/liu
Martin Hermannsson, landsliðsmaður í körfubolta, fór á kostum með liði sínu Brooklyn Blackbirds í háskólaboltanum í nótt þegar liðið vann Sacred Heart, 92-84. Martin skoraði 22 stig, tók átta fráköst, gaf stjö stoðsendingar og stal fimm boltum, en hann er aðeins fjórði leikmaðurinn í háskólaboltanum í vetur sem nær annarri eins tölfræðilínu. Bakvörðurinn magnaði er á öðru ári hjá LIU Brooklyn-háskólanum og hefur augljóslega tekið miklum framförum. Þjálfari hans, Jack Perri, er mjög hrifinn af Martin sem leikmanni og hefur bara fallega hluti að segja um Íslendinginn. Hörður Tulinius, fréttaritari körfuboltavefsíðunnar karfan.is, var í Brooklyn á dögunum og tók Perri tali þar sem hann spurði þjálfarann út í Martin Hermannsson. Viðtalið á vef karfan.is má sjá hér. „Hann er frábær á svo marga vegu. Vinnusiðferði hans á sér enga hliðstæðu. Hann leggur sig allan fram á hverjum einasta degi og það þarf enginn að hafa neitt fyrir honum, hvort sem það er í skólastofunni, á skólalóðinni og sérstaklega ekki á körfuboltavellinum. Ég vildi óska þess að ég væri með fimmtán Martin Hermannssyni,“ sagði Perri. „Það eina sem hann átti í vandræðum með í fyrra á fyrsta ári voru þriggja stiga skotin. Hann var ekki með góða nýtingu fyrir utan. Hann þurfti að keyra meira á körfuna eins og ég hélt að hann myndi gera.“ Martin, sem er fæddur árið 1994, fór með íslenska landsliðinu á EM í körfubolta á síðasta ári og safnaði þar miklu í reynslubankann. Perri telur þá ferð hafa gert honum vel. „Við erum núna að horfa á Martin Hermannsson sem er fullur sjálfstrausts eftir að spila með íslenska landsliðinu. Nú er þriggja stiga nýtingin hans mun betri og hann er að búa sér til skot sjálfur og fyrir aðra,“ sagði Perri. „Hann er búinn að vera alveg frábær, einn sá besti í deildinni. Hann er líka frábær leiðtogi og verður bara betri og betri. Martin verður líka bara betri varnarmaður því hann vinnur í varnarleiknum og það skiptir hann máli að bæta sig. Framtíðin er mjög björt fyrir þennan unga mann,“ sagði Jack Perri.
Körfubolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti Setja pressu á Barcelona með sigri Fótbolti Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Fótbolti „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Enski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira