Með hundrað prósent þriggja stiga nýtingu á móti Njarðvík og KR Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. janúar 2016 17:45 Reggie Dupree. Vísir/Ernir
Njarðvík og KR hafa löngum verið helstu andstæðingar Keflvíkinga í körfuboltanum og leikir liðanna oft spennuþrungnir og krefjandi fyrir leikmenn liðanna. Einn Keflvíkingur hefur náð ótrúlegri tölfræði í þremur leikjum liðsins á móti þessum tveimur liðum í Domino´s deild karla í vetur. Reggie Dupree hefur stimplað sig inn í Keflavíkurliðið á þessu tímabili eftir takmarkað hlutverk í fyrravetur og er með 13,1 stig að meðaltali á 28,6 mínútum í leik. Þrír af bestu leikjum hans hafa komið á móti Njarðvík og Keflavík þar sem hann er með 20,3 stig að meðaltali í leik. Það er vissulega ekki slæm tölfræði en það er aftur á móti þriggja stiga nýting hans í þessum leikjum sem slær allt annað út. Reggie Dupree hefur nefnilega hitt úr öllum þrettán þriggja stiga skotum sínum í leikjunum við Njarðík og KR. Hann skoraði fjóra þrista í báðum Njarðvíkurleikjunum og fimm þrista í eina KR-leiknum til þessa. Reggie Dupree hefur alls nýtt 54,9 prósent þriggja stiga skota sinna í Domino´s deildinni á tímabilinu og er eins og er í efsta sætinu yfir bestu þriggja stiga nýtinguna í deildinni. Keflavík á eftir að spila við KR í DHL-höllinni og fer sá leikur fram 19. febrúar næstkomandi. Það verður spennandi að sjá hvort að Reggie Dupree ná hundrað prósent þriggja stiga nýtingu í öllum leikjum sínum á móti erkifjendum Keflvíkinga á þessu tímabili.Leikir Reggie Dupree á móti Njarðvík og KR í vetur:94-84 sigur á Njarðvík í október 18 stig, hitti úr 4 af 4 þriggja stiga skotum sínum89-81 sigur á KR í nóvember 21 stig, hitti úr 5 af 5 þriggja stiga skotum sínum86-92 tap fyrir Njarðvík í janúar 22 stig, hitti úr 4 af 4 þriggja stiga skotum sínum
Dominos-deild karla Mest lesið Marlena vann Bakgarðshlaupið: „Ég hljóp bara“ Sport Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Fær sér ís í heita pottinum eftir tæplega 250 kílómetra hlaup Sport Haaland kastaði boltanum í hnakkann á Gabriel eftir jöfnunarmark City Fótbolti Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Enski boltinn Sér eftir að hafa valið Val fram yfir KR Íslenski boltinn Marlena er sigurvegari Bakgarðshlaupsins Sport Refsing fyrir að blóta gæti flýtt fyrir því að Verstappen hætti Formúla 1 Clark slegin í augað í frumraun Körfubolti Keane segir Arteta að taka lyfin sín Enski boltinn Fleiri fréttir Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Sjá meira