Körfubolti

Körfuboltakvöld: Kennslubókardæmi hvernig þú sprengir upp varnir

Kristinn Páll Teitsson skrifar
„Það er svo mikil nákvæmni í þessum fyrirmælum. Íslenskir þjálfarar geta lært af þessu,“ sagði Kjartan Atli Kjartansson, þáttastjórnandi í þættinum Körfuboltakvöld í gær.

Jose Costa, þjálfari Tindastóls, stillti upp í frábært leikkerfi í leik liðsins gegn Keflavík á föstudaginn sem endaði með fullorðins troðslu frá Myron Dempsey.

„Þetta á að vera í þjálfarabókum hvernig á að sprengja upp varnir. Hann fagnar og hann veit að hann á þetta,“ sagði Kjartan en sérfræðingar þáttsins tóku undir það.

„Þú ert með reynda leikmenn sem kunna að gera þetta og leikmennirnir hlustuðu greinilega á hann. Það hefði verið auðvelt fyrir leikmann að gleyma sér þarna,“ sagði Fannar Ólafsson en umræðuna má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×