ÍR-ingar mæta á Egilsstaði án bandaríska leikmannsins síns Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. febrúar 2016 16:30 Jonathan Mitchell. Vísir/Anton
Jonathan Mitchell verður ekki með ÍR-liðinu í leiknum mikilvæga á móti Hetti í Domino´s deild karla í körfubolta sem fram fer á Egilsstöðum á fimmtudagskvöldið. Borche Ilievski, þjálfari ÍR-liðsins, staðfesti það við karfan.is að Jonathan Mitchell muni missa af leiknum en Bandaríkjamaðurinn er enn að ná sér eftir að hafa fengið lungabólgu. „Hann á að taka sér um sex vikna hlé en við vonum að það verði ekki svo langt,“ sagði Borche Ilievski við karfan.is. Höttur er sex stigum á eftir ÍR þegar fjórar umferðir og átta stig eru eftir í pottinum. Höttur verður að vinna leikinn til að eiga möguleika á því að ná ÍR og halda sér í deildinni. Hattarliðið hélt sér á lífi með því að vinna FSU í síðustu umferð en liðið hefur spilað mjög vel að undanförnu og var hársbreidd frá því að vinna bæði Tindastól (81-84), Keflavík (66-69) og Snæfell (89-90) en liðið tapaði þessum þremur leikjum með samtals sjö stigum. Jonathan Mitchell var ekki með á móti Njarðvík í síðustu umferð þar sem Njarðvíkingar þurftu að hafa sig alla við til að landa sigri. Mitchell mun missa af sínum fimmta deildarleik á tímabilinu á móti Hetti en fyrr í vetur gat hann ekki spilað eftir að hafa fengið blóðtappa í annan fótinn. Jonathan Mitchell er með 26,4 stig og 11,1 frákast að meðaltali í þeim 14 leikjum sem hann hefur spilað en ÍR-liðið hefur unnið fjóra af þeim. „Við vitum ekki hve langan tíma þetta mun taka en Mitchell mun reyna að æfa eitthvað í vikunni en hann leikur ekki með gegn Hetti, svo mikið er víst," bætti Borche Ilievski við í viðtali við karfan.is. ÍR hefur aðeins unnið 1 af 5 leikjum sínum án Jonathan Mitchell í vetur og sá sigur kom á móti Stjörnunni 29. október. Oddur Rúnar Kristjánsson var með 28 stig og 8 stoðsendingar í þeim leik en hann fór til Njarðvíkur um áramótin og verður því eins og Mitchell fjarri góðu gamni á Egilsstöðum.
Dominos-deild karla Mest lesið Marlena vann Bakgarðshlaupið: „Ég hljóp bara“ Sport Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Fær sér ís í heita pottinum eftir tæplega 250 kílómetra hlaup Sport Haaland kastaði boltanum í hnakkann á Gabriel eftir jöfnunarmark City Fótbolti Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Enski boltinn Sér eftir að hafa valið Val fram yfir KR Íslenski boltinn Marlena er sigurvegari Bakgarðshlaupsins Sport Refsing fyrir að blóta gæti flýtt fyrir því að Verstappen hætti Formúla 1 Clark slegin í augað í frumraun Körfubolti Keane segir Arteta að taka lyfin sín Enski boltinn Fleiri fréttir Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Sjá meira