Körfubolti

Viðar: Svo kemur þú með kjaftshögg á hina hliðina

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Viðar Örn Hafsteinsson, þjálfari Hattar.
Viðar Örn Hafsteinsson, þjálfari Hattar. Vísir
Viðar Örn Hafsteinsson, þjálfari Hattar, var ekki ánægður með að heyra þau tíðindi frá blaðamanni Vísi eftir leikinn í kvöld að ÍR hefði unnið sinn leik gegn Snæfelli og þar með væri ljóst að Höttur væri fallið úr Domino's-deild karla.

Höttur tapaði fyrir Stjörnunni, 90-72, og þar með sínum sautjánda leik af 20 í vetur. Það hefur því lengi stefnt í að nýliðarnir frá Egilsstöðum væru aftur á leið í 1. deildina.

„Maður er drullusvekktur. Menn mæta ekki tilbúnir til leiks hér í kvöld. Lokaflautið gellur og þá labbarðu að manni og gefur manni kjaftshögg á hina hliðina. Við erum bara ekki nógu góðir til að vera í efstu deild,“ sagði Viðar.

Viðar tók hraustlega til máls í nokkrum leikhléum í upphafi leiks og það var ekki að ástæðulausu.

„Við mættum flatir og lélegir til leiks. Stjörnumenn börðu okkur í klessu og við bökkuðum frá því. Þeir eru með ágætislið og við hefðum þurft toppframmistöðu til að vinna þá í kvöld.“

„En með svona frammistöðu þá fer þetta bara svona. Við vorum bara lélegir. Þetta hefur verið ágætt heilt yfir eftir áramót en vorum engan veginn tilbúnir í þennan bardaga í kvöld.“

„Maður er bara orðlaus. Ég var nú að vona að við fengjum annan séns. En við ýttum því bara frá okkur. Aumingjaskapur.“

Höttur þurfti að bíða lengi eftir fyrsta sigrinum sínum í vetur og þó svo að liðið hafi komist vel í gang að undanförnu var það einfaldlega of seint.

„Við unnum tvo á undan þessu og höfðum trú. En ætlu menn hafi ekki bara trúað því að þetta kæmi að sjálfu sér. Það voru stór mistök.“

Hann vildi ekkert tala um hvað Hattarmenn hefðu lært af þessum vetri, enda ótímabært. „Það fer í mig eitthvað helvítis tal um að við eigum eitthvað betra skilið. Við eigum bara ekki neitt skilið. Við erum bara búnir að vinna þrjá leiki og við eigum það bara skilið að fara niður.“

„Helvítið hann Jonni hafði rétt fyrir sér um að við værum lélegasta liðið í efstu deild. Við verðum þá bara að reyna að koma okkur upp aftur og standa okkur.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×