Handbolti

Anton og Jónas fá stórleik á miðvikudaginn

Anton Ingi Leifsson skrifar
Okkar fremsta dómarapar er að fá fullt af flottum verkefnum þessa daganna.
Okkar fremsta dómarapar er að fá fullt af flottum verkefnum þessa daganna. vísir/getty
Fremsta dómarapar Íslands í handbolta munu dæma leik Kiel og Pick Szeged í Meistaradeild Evrópu á miðvikudaginn. Morgunblaðið greinir frá.

Liðin mætast í Ungverjalandi á morgun, en leikurinn er liður í 12-liða úrslitum Meistaradeilarinnar. Alfreð Gíslason þjálfar eins og kunnugt er lið Kiel.

Leikurinn fer fram í Kiel á miðvikudag, en báðir leikirnir verða í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Sá fyrri á morgun klukkan 17:25.

Dómararnir hafa verið á faraldsfæti undanfarið. Þeir dæmdu vináttulandsleiki Þýskalands og Katar um síðustu helgi og verða svo að dæma í forkeppni Ólympíuleikana 8. - 10. apríl.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×