Handbolti

Snorri og Ásgeir með mikilvæg mörk á lokamínútunum í sigurleik

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Snorri Steinn Guðjónsson skoraði sex mörk.
Snorri Steinn Guðjónsson skoraði sex mörk. vísir/valli
Snorri Steinn Guðjónsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson voru í sigurliði í frönsku 1. deildinni í kvöld þegar Nimes hafði betur gegn næst neðsta liði deildarinnar, Tremblay, 33-30.

Gestirnir voru marki yfir í hálfleik, 17-16, en seinni hálfleikurinn var mjög spennandi og var jafnt á öllum tölum frá 23-23.

Snorri Steinn Guðjónsson jafnaði metin í 29-29 en það var eitt af sex mörkum hans í leiknum. Snorri skoraði fjögur mörk í níu skotum úr opnum leik og nýtti tvö af þremur vítaköstum sínum.

Ásgeir Örn Hallgrímsson skoraði fimm mörk í tíu skotum en hann innsiglaði sigur Nimes þegar hann kom liðinu í 32-30 en þar með var leik lokið. Heimamenn bættu svo einu marki við.

Nimes lyft sér upp í áttunda sæti deildarinnar en liðið er með 18 stig etir 18 leiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×