Handbolti

Hannes kom West Wien í undanúrslit bikarsins

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Hannes Jón Jónsson.
Hannes Jón Jónsson. mynd/obh.au
Hannes Jón Jónsson og lærisveinar hans í austurríska úrvalsdeildarliðinu West Wien komust í kvöld í undanúrslit bikarkeppninnar þar í landi.

West Wien hafði betur gegn Sparkasse Schwaz, 23-22, í leik sem varð spennandi undir lokin, en lærisveinar Hannesar voru þó sex mörkum yfir í hálfleik, 14-8.

Heimamenn náðu mest átta marka forskoti í seinni hálfleik, 20-12, en strákarnir í Schwaz minnkuðu muninn í 23-21 þegar 90 sekúndur voru eftir og svo í 23-22 þegar 21 sekúnda var eftir.

West Wien náði að halda út og vinna leikinn með einu marki, en þessi lið berjast um efsta sætið í umspili neðri helmings austurísku úrvalsdeildarinnar.

West Wien hafnaði í sjöunda sæti deildarinnar með 13 stig eftir 18 leiki og spilar því restina af deildinni með sex neðstu liðunum. Sparkasse Schwaz lenti einmitt í sjötta sæti með 18 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×