Körfubolti

Körfuboltakvöld í opinni dagskrá og í beinni á Vísi í kvöld

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Kjartan Atli Kjartansson verður með alla sérfræðingana sína í þætti kvöldsins.
Kjartan Atli Kjartansson verður með alla sérfræðingana sína í þætti kvöldsins. vísir
Tvöfaldur lokaþáttur Dominos-Körfuboltakvölds verður í opinni dagskrá Stöð 2 Sport HD í kvöld klukkan 21.00 og einnig í beinni á Vísi.

Deildarkeppni Dominos-deildar karla lauk í gærkvöldi þar sem KR tryggði sér deildarmeistaratitilinn, en umferðin og deildin í heild sinni verður gerð upp í þættinum í kvöld.

Í fyrri hlutanum munu þeir Kristinn Friðriksson og Hermann Hauksson gera upp lokaumferðina og það sem gerðist þar, en í gær varð ljós hvaða lið mætast í úrslitakeppninni.

Seinni hlutinn verður svo bara uppgjör og glens og gaman. Fannar Ólafsson og Jón Halldór Eðvaldsson sitja þá með Kjartani Atla og gera upp deildarkeppnina með gleðina að vopni.

Búið er að klippa til allt það besta og fyndnasta úr þáttunum hingað til og gera frábær innslög; troðslur, blokk, bestu tilþrifin, fyndin viðtöl og margt fleira. Þessu má enginn missa af.

Dominos-Körfuboltakvöldi er þó langt því frá lokið. Hitað verður upp fyrir úrslitakeppnina í sérþætti í næstu viku og svo verður þátturinn á ferð og flugi í úrslitakeppninni og sendir beint út frá íþróttahúsunum þar til Íslandsmeistari verður krýndur.

Ekki missa af Dominos-Körfuboltakvöldi í opinni dagskrá Stöð 2 Sport HD klukkan 21.00 í kvöld og í beinni á Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×