Elvar bætti skólamet Barry í stoðsendingum um heil tuttugu prósent Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. mars 2016 17:30 Elvar Már Friðriksson. Mynd/Heimasíða Barry
Njarðvíkingurinn Elvar Már Friðriksson hefur lokið sínu fyrsta tímabili með Barry-háskólanum í bandaríska háskólakörfuboltanum en Elvar Már og félagar urðu að sætta sig við að detta út úr átta liða úrslitum úrslitakeppninnar. Elvar hætti í LIU Brooklyn skólanum eftir síðasta vetur og skipti yfir í Barry sem spilar í 2. deild háskólaboltans í Bandaríkjunum. Það er óhætt að segja að íslenski leikstjórnandinn hafi endurskrifað metabók skólans þegar kemur að því að spila liðsfélagana uppi. Elvar gaf nefnilega alls 267 stoðsendingar í 33 leikjum Barry á tímabilinu eða 8,1 að meðaltali í leik. Hann var einnig með 10,8 stig og 1,6 stolinn bolta í leik. Elvar var fyrir löngu búinn að setja nýtt skólamet í stoðsendingum þegar kom að þessum síðustu leikjum í úrslitakeppninni. Elvar bætti metið á endanum um heilar 46 stoðsendingar eða um rúmlega tuttugu prósent. Hann var aðeins annar leikmaðurinn sem nær því að gefa tvö hundruð stoðsendingar á einu tímabili. Elvar Már er einnig fyrsti leikmaðurinn í sögu Barry-skólans til að gefa yfir átta stoðsendingar að meðaltali í leik á einu tímabili. Elvar gaf mest 14 stoðsendingar í einum leik en hann gaf tíu stoðsendingar eða meira í tólf leikjum og var með fimm stoðsendingar eða meira í 29 af 33 leikjum tímabilsins.Flestar stoðsendingar á einu tímabili í sögu Barry-háskólans: 1. 267 Elvar Már FRIÐRIKSSON - 2015-16 2. 221 Deric HILL - 2014-15 3. 215 Deric HILL - 2013-14 4. 168 Nelson FONSECA - 1993-94 5. 163 Ryan SAUNDERS - 2005-06 6. 162 Ryan SAUNDERS - 2004-05 7. 151 Michael ANDERSON - 1991-92 8. 135 Nelson FONSECA - 1992-93 9. 132 Jason Junker - 2000-01 10. 128 Ryan SAUNDERS - 2003-04Flestar stoðsendingar að meðaltali í leik á einu tímabili í sögu Barry-háskólans: 1. 8.1 Elvar Már FRIÐRIKSSON (33 leikir) - 2015-16 2. 7.7 Deric HILL (28 leikir) - 2013-14 3. 7.4 Deric HILL (30 leikir) - 2014-15 4. 6.2 Nelson FONSECA (27 leikir) - 1993-94 5. 6.1 Nelson FONSECA (22 leikir) - 1992-93 6. 5.4 Ryan SAUNDERS (30 leikir) - 2005-06 7. 5.1 Ryan SAUNDERS (32 leikir) - 2004-05 8. 5.0 Michael ANDERSON (30 leikir) - 1991-92 9. 4.6 Ryan SAUNDERS (28 leikir) - 2003-04 10. 4.6 Jason Junker (29 leikir) - 2000-01
Körfubolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Fótbolti Setja pressu á Barcelona með sigri Fótbolti Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira